top of page
St Andrews Old.jpeg

Það er auðveldara en þú heldur að setja upp golfhermi í heimahúsi. Við aðstoðum þig við hvert skref og sjáum til þess að þú getir spilað þitt besta golf heima hjá þér.

ALGENGAR SPURNINGAR

  • Hversu stórt rými þarf ég til að geta sett upp golfhermi ?
    Lágmarks stærð á rými er eftirfarandi: - Hæð: 280cm - Breidd: 300cm - Dýpt: 400-500cm (fer eftir tegund golfhermis)
  • Hvað er langur afgreiðslutími ?
    Ef vara er ekki til á lager er hægt að gera ráð fyrir 7-10 daga afgreiðslufrest.
  • Hvernig endurnýja ég Skytrak áskriftina mína ?
    Skytrak áskriftin gildir í eitt ár í senn og þarf að fara inn á síðuna þeirra til þess að endurnýja. www.Skytrakgolf.com > Support > Manage subscription. Ef þú lendir í vandræðum er alltaf hægt að hafa samband við okkur og við munum aðstoða við að koma þessu í lag.
  • Hver er helsti munurinn á Skytrak, Foresight GC3 og Trackman ?
    Hér höfum við þrjá af vinsælustu golfhermunum á markaðnum. Þeir hafa allir sína kosti . Skytrak+ - Mun ódýrari en hinir, 550.000kr. - Notast við bæði myndavélakerfi en einnig radar tækni sem gerir honum kleift að gefa kylfingum nákvæmar upplýsingar um bæði boltaflug of kylfuferil. - Skytrak (og Foresight GC3) þurfa minna rými heldur en Trackman (Hæð: 280cm, breidd: 300cm, dýpt: 400cm). Foresight GC3 - Foresight GC3 notast við þrjár háhraða myndavélar til að lesa upplýsingarnar og gefur kylfing bæði boltaflugs upplýsingar auk kylfu upplýsinga. - Foresight missir færri högg heldur en Skytrak og getur því talist áreiðanlegri. Trackman - Það má segja að Trackman sé einn fullkomnasti hermirinn á markaðnum. - Trackman notast við radar tækni og getur talist nákvæmari en hinir. - Trackman forritið er virkilega vandað og er mikill fjöldi golfvalla í boði þar auk fullkominnar æfingaraðstöðu.

1

AÐSTAÐAN

simboxx.png

Fyrst þarf að huga að aðstöðunni. Hversu stórt er rýmið sem unnið er með? Hægt er að sérsníða aðstöðuna inn í hvert rými en einnig er hægt að hafa það frístandandi eins og Simbox.

2

GOLFHERMIR

Mikilvægast af þessu öllu er golfhermirinn sjálfur. Það er oft stærsta fjárfestingin af pakkanum og því mikilvægt að velja vel.

Margar mismunandi tegundir eru í boði, bæði tæki sem byggja á myndavéla kerfi en einnig tæki sem byggja á radar tækni.

3

TÆKJABÚNAÐUR

skjavarpi og tölva.png

Til þess að allt tali saman og þú fáir mynd á tjaldið þarf að hafa bæði tölvu og skjávarpa.

Tegund skjávarpa fer eftir stærð rýmisins og hversu langt þú þarft að varpa myndinni.

4

FORRIT

forrit.png

Að lokum eru það golfherma forritin sem innihalda alla frábæri golfvellina sem í boði eru.

Við erum með mikið úrval allra helstu forritanna sem í boði eru.

bottom of page