Við komum með golfhermi til þín
Bættu einstökum golfhermi við viðburðinn þinn. Við mætum með búnaðinn, setjum allt upp, kennum á kerfið og getum einnig verið með starfsmann á staðnum sem sér um aðstoð og aðgengi.
Golfhermir sem skapar stemmingu
Golfherma leiga hentar vel fyrir fyrirtækjaviðburði, starfsmannagleði, árshátíðir, golfmót, sýningar og aðra viðburði þar sem þú vilt bjóða gestum upp á eitthvað öðruvísi. Hermirinn er einfaldur í notkun, skemmtilegur fyrir bæði vana kylfinga og byrjendur, og hægt er að aðlaga uppsetninguna að stærð og eðli viðburðarins.
Við gerum þetta einfalt
Þú þarft ekki að vera sérfræðingur í golfhermum til að bjóða upp á góða upplifun. Við sjáum um búnaðinn og hjálpum þér að velja útfærslu sem passar við viðburðinn.
Við förum yfir rýmið
Við skoðum lofthæð, breidd, dýpt, rafmagn og aðgengi áður en bókun er staðfest.
Við mætum með búnað
Golfhermir, skjár, motta, tölva, skjávarpi og annar nauðsynlegur búnaður fylgir uppsetningu.
Við setjum upp
Við setjum allt upp fyrir viðburðinn og kennum á grunnnotkun áður en spilun hefst.
Við tökum niður
Í lok leigu sjáum við um frágang og tökum búnaðinn niður, þannig þú þarft ekki að hugsa um það.
Rýmið þarf að henta fyrir örugga uppsetningu
Til að golfhermirinn virki vel þarf rýmið að vera nægilega stórt og öruggt. Við förum alltaf yfir aðstæður áður en endanleg uppsetning er ákveðin.
310 cm+
Rýmið þarf að vera nógu hátt til að hægt sé að sveifla kylfu örugglega.
400 cm+
Næg breidd skiptir máli fyrir örugga stöðu, sveiflu og aðgengi gesta.
500 cm+
Dýptin þarf að henta skjá, mottu, búnaði og öruggri fjarlægð frá höggi.
Veldu útfærslu sem passar við viðburðinn
Hvort sem þú ert með minni starfsmannahóp eða stærri viðburð getum við sett upp lausn sem hentar. Fyrir lengri leigu eða sérverkefni gerum við sértilboð.
Golfhermir
Golfhermir í einn dag með uppsetningu og grunnkennslu.
- Endalaust golf í heilan dag
- Uppsetning og frágangur í lok dags
- Kennsla á tækjabúnað
- Aðstoð í gegnum síma
- Hentar vel fyrir minni hópa og starfsmannaviðburði
Golfhermir með starfsmanni
Golfhermir í einn dag með starfsmanni frá Golfhermi á staðnum.
- Endalaust golf í heilan dag
- Við sjáum um uppsetningu og tökum niður
- Starfsmaður stýrir aðgengi og aðstoðar gesti
- Góð lausn fyrir stærri viðburði og mikið flæði
- Golfsett fylgir fyrir gesti
Sérsniðin leiga
Fyrir lengri leigu, sérviðburði, nokkra daga eða tímabundna uppsetningu.
- Hálfur dagur, heill dagur eða lengri leiga
- Lausn aðlöguð að rými og fjölda gesta
- Hægt að bæta við golfkennslu
- Tilvalið fyrir fyrirtæki, sýningar og golfmót
- Við setjum upp tilboð út frá þínum þörfum
Golfhermir hentar bæði inni og úti
Við höfum sett upp golfherma fyrir ólíka viðburði og aðstæður. Uppsetningin fer alltaf eftir rýminu, aðgengi, veðri og því hvernig gestir eiga að nota herminn.
Spurt og svarað um golfherma leigu
Hér eru algengar spurningar sem koma upp þegar golfhermir er bókaður fyrir viðburð.
Hvað þarf mikið pláss fyrir golfhermi?
Við miðum almennt við að rýmið sé að minnsta kosti 310 cm á hæð, 400 cm á breidd og 500 cm á dýpt. Það þarf líka að skoða aðgengi, rafmagn og hvort öruggt sé að sveifla kylfu í rýminu.
Komið þið með golfsett?
Já, við komum með golfsett sem gestir geta notað. Gestir mega einnig nota sitt eigið sett ef það hentar betur.
Þarf starfsmaður að vera á staðnum?
Ekki alltaf. Við setjum alltaf upp búnaðinn og kennum á notkunina. Á stærri viðburðum mælum við þó með starfsmanni frá Golfhermi sem stýrir flæði, aðstoðar gesti og sér til þess að allt gangi vel.
Er hægt að bóka golfkennslu með?
Já, hægt er að bæta við golfkennslu, bæði fyrir einstaklinga og hópa. Þetta hentar sérstaklega vel fyrir vinnustaði, hópefli eða viðburði þar sem fólk vill fá meira út úr upplifuninni.
Get ég leigt golfhermi lengur en einn dag?
Já, við getum gert sértilboð fyrir lengri leigu, nokkra daga, vikur eða tímabundna uppsetningu. Hafðu samband og við setjum saman lausn miðað við þínar þarfir.
Hentar golfhermir fyrir fólk sem hefur aldrei spilað golf?
Já, það er einmitt einn af kostunum. Golfhermirinn er skemmtilegur fyrir bæði vana kylfinga og byrjendur, og við getum stillt upplifunina þannig að hún henti hópnum.
Viltu bjóða upp á eitthvað öðruvísi?
Sendu okkur upplýsingar um dagsetningu, staðsetningu, fjölda gesta og rýmið sem þú hefur í boði. Við hjálpum þér að velja rétta útfærslu og setjum upp tilboð ef þörf er á.