Premium Pressure Putt Trainer
PuttOUT Premium Pressure Putt Trainer er einfalt og áhrifaríkt æfingatæki fyrir þá sem vilja bæta púttlínuna og hraðastjórnunina. Hann líkir eftir alvöru golfholu og gefur skýra endurgjöf á hvert pútt — góð pútt skila boltanum til baka, en aðeins fullkomið pútt festist í litla micro-targetinu.
Auðvelt að brjóta saman og hentar því vel bæði heima á púttmottu og á æfingaflötinni. Frábær leið til að gera púttæfingar markvissari, skemmtilegri og meira krefjandi.